Brot úr nýjum bókum

Jójó

JójóHér á vefnum er hægt að kynna sér nýjar og eldri bækur með því að lesa valin brot úr þeim. Það er gert með því að velja höfund í höfundalista og smella síðan á tengilinn Textabrot efst á forsíðu höfundarins. Bækurnar geta verið hvort sem er frumsamdar á íslensku eða þýðingar þeirra höfunda, sem eiga síður á vefnum, á skáldskap erlendra kollega sinna.

Textabrot vikunnar sækjum við í Jójó Steinunnar Sigurðardóttur, sem kom út nú fyrir jólin. Þar segir útigangsmaðurinn Martin Martinetti frá því hvernig hann heldur sér klipptum og rökuðum, í einu orði snyrtilegum, jafnvel þótt hann sé á götunni. Enda dugar ekki fyrir velmælandi og velmeinandi róna í Parísarborg að ganga um eins og álfur út úr hól.

Lesið textabrotið hér.


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook



Skipta um leturstærð


Tungumál